Hvernig vef dreymir þig um að fá fyrir þig eða fyrirtækið þitt? Sendu okkur lýsingu með draumavefnum þínum og hvaða sanngjarna verð þú vilt fá hann á, og hver veit nema þú verðir dregin(n) út í þessum mánuði! Draumalýsingin þarf að vera sem nákvæmust svo þú fáir örugglega það sem þú raunverulega vilt fá.
Störf í boði:
Freelance forritarar: Ertu fær PHP/MySQL forritari og hefur lausan tíma til aflögu? Við erum alltaf að leita að hæfileikaríkum og skapandi forriturum til að vinna með okkur. Sendu okkur línu (go@go.is) og segðu okkur hvað þú hefur fengist við, hvað þú kannt og hvað þú vilt gera. Við tökum að okkur mismunandi verkefni og þurfum reglulega að leita til forritara með skemmtileg verkefni.
Freelance myndsmiðir: Ertu fær "grafíkker" og vantar þig verkefni? Vegna fjölda verkefna leitum við reglulega að hæfileikaríkum einstaklingum sem vilja vinna við að smíða útlit á heimasíður, vefkerfi og vegna annarra verkefna. Hafðu samband (go@go.is) ef þú hefur áhuga á að vinna með framsæknu fyrirtæki á þessu sviði.