Hvernig vef dreymir þig um að fá fyrir þig eða fyrirtækið þitt? Sendu okkur lýsingu með draumavefnum þínum og hvaða sanngjarna verð þú vilt fá hann á, og hver veit nema þú verðir dregin(n) út í þessum mánuði! Draumalýsingin þarf að vera sem nákvæmust svo þú fáir örugglega það sem þú raunverulega vilt fá.
Hefur þú áhuga á að gerast endursöluaðili fyrir go.is?
Ef svo er, þá ertu á réttum stað. Það sem þú þarft að gera er að skrá þig hjá okkur með því að senda okkur póst á go@go.is og taka fram í póstinum eftirfarandi atriði:
Nafn þitt Símanúmer Netfang
Í boði eru tvær leiðir til endursölu:
Vefauglýsingar og markaðsstarf á netinu:
Með því að kynna go.is á vefnum getur þú fengið greitt fyrir þær sölur sem verða af beinum tengslum við vefsvæði þitt og/eða undirsíður en þetta er mjög einföld og þægileg leið fyrir alla þá sem halda úti vefsvæði. Það eina sem þú þarft að gera er að koma fyrir þartilgerðum auglýsingaborða (sem til eru í ýmsum stærðum og gerðum) á þær vefsíður sem þú ræður yfir og/eða þeim vefsvæðum sem þú hefur aðgang að.
Mundu að tilgreina vefsíðuna (síðurnar) þar sem auglýsingin mun koma fram.
Bein sala og markaðsstörf:
Kjósir þú frekar að kynna vefhýsingarlausnir go.is opinberlega á persónulegan hátt skaltu taka það fram í pósti til okkar, reynslu þína og kunnáttu á þessu sviði og hvers vegna þú vilt aðstoða við uppbyggingu go.is. Mikilvægt er að góð þekking á vefmarkaði sé til staðar.
Nú er bara að setja sig í stellingar og hafa samband. Við svörum öllum fyrirspurnum sem berast. Miklir tekjumöguleikar fyrir duglega sölumenn. Að auki geta þeir sem það kjósa fengið hýsingarsamning fyrir eigið lén í skiptum fyrir sölulaun (tvöfalt vægi).