|
Vefumsjónarkerfi |
 |
Joomla (Skoða síðu framleiðanda) Mjög öflugt vefumsjónarkerfi sem býður upp á WYSIWYG ritþór, myndakerfi, fréttakerfi, textakerfi, auglýsingar, tölfræðiupplýsingar, tímastýringar efnis, mjög stórt safn af aukakerfum o.fl. o.fl. |
|
Drupal (Skoða síðu framleiðanda) Drupal er mjög öflugt kerfi sem býður upp á smíði einfaldrar bloggsíðu upp í rekstur öflugs vefsamfélagskerfis með umræðukerfum, verk- og ritstjórnunarkerfum, aðgangsstýringum, leitarmöguleikum o.fl. |
|
Geeklog (Skoða síðu framleiðanda) Geeklog er afar sniðugt kerfi fyrir vefsamfélög, með notendastýringu, fréttakerfi, dagatali, könnunum o.fl. sniðugu. |
|
PHP-Nuke (Skoða síðu framleiðanda) PHP Nuke er geysilega vinsælt vefumsjónarkerfi sem er afar hentugt fyrir félagasamtök og önnur vefsamfélög. Mikið af skemmtilegum möguleikum og fjöldi viðbóta fáanlegur af heimasíðu framleiðanda. |
|
phpWebSite (Skoða síðu framleiðanda) Einfalt en öflugt vefumsjónarkerfi með myndaalbúmi, dagatali, Spurt&svarað, könnunum, spurningarformum o.fl. |
|
PHPwcms (Skoða síðu framleiðanda) Afar öflugt vefumsjónarkerfi sem er þó í senn sérstaklega einfalt og þægilegt. Hægt er að stjórna útliti síðu beint úr kerfinu, setja upp mismunandi síðuskipan o.fl. Eitthvað sem allir ættu að prófa. |
|
Post-Nuke (Skoða síðu framleiðanda) Vefumsjónarkerfi með miklum stækkunarmöguleikum. Fjöldi viðbótarkerfa frá heimasíðu framleiðanda. |
|
Siteframe (Skoða síðu framleiðanda) Einfalt og stílhreint vefumsjónarkerfi sem er hentugt fyrir vefsamfélög. Þægilegt umsjónarkerfi. |
|
Xoops (Skoða síðu framleiðanda) Hlutbundið vefumsjónarkerfi til að halda utan um lítil sem stór vefsamfélagskerfi. Hentar einnig sem bloggkerfi. |
| |
|
Blog kerfi (weblog) |
|
b2 (Skoða síðu framleiðanda) Skrifaðu eitthvað fréttnæmt og smellut á "Blog this!". Þú ert komin(n) í loftið! Þú getur sent blogg með tölvupósti, sent MMS skilaboð, jafnvel talað inn bloggið í gegnum síma. Hvað þarftu annað? |
|
b2evolution (Skoða síðu framleiðanda) Ennþá flottari útgáfa af b2 kerfinu. Nú geta margir bloggað í einu. Þú ræður hver hefur völdin. |
|
Nucleus (Skoða síðu framleiðanda) Bloggkerfi sem býður upp á marga notendur, myndaupphleðslu o.fl. Afar öflugt kerfi fyrir vefsíðuna þína. |
|
pMachine Free (Skoða síðu framleiðanda) Kerfið er einfölduð útgáfa af pMachine Pro, en það bloggkerfi er án efa eitt öflugasta kerfi á markaðnum í dag. Fjöldi möguleika á borð við flokka, myndaupphleðslu, tengla o.fl. |
|
WordPress (Skoða síðu framleiðanda) WordPress er mörgum netverjum að góðu kunnugt en kerfið var m.a. grunnurinn að frettir.com, þeim ágæta vef. Fullt af stílsíðum, aðgangsstýringar o.fl. en umfram allt frábært tól til að halda úti fréttaveitu með athugasemdum. |
| |
|
Umræðukerfi (forums) |
|
phpBB2 (Skoða síðu framleiðanda) phpBB2 er afar öflugt spjallborðskerfi sem býður upp á notendastýringu, skrárupphleðslu, kannanir, o.fl. Frábært spjallborðs- og umræðukerfi. |
|
Invision Board (Skoða síðu framleiðanda) Invision er ekki síðra umræðukerfi en phpBB2. Kerfið býður upp á svipaða möguleika og er afar þægilegt í umsjón. |
|
YaBBSE (Skoða síðu framleiðanda) Enn eitt umræðu/spjallborðskerfið. Hraðvirkt og þægilegt. |
| |
|
Þjónusta við viðskiptavini |
|
CS Live Help (Skoða síðu framleiðanda) CS er sérstaklega þægilegt fyrirspurnakerfi fyrir vefsíður. Gestir síðunnar geta talað "live" við stjórnanda (einn eða fleiri) í rauntíma á spjallkerfi líku MSN. Frábær þjónustuaukning við viðskiptavini fyrirtækisins. |
|
Help Centre Live (Skoða síðu framleiðanda) Mjög líkt kerfi CS Live Help en býður einnig upp á þjónustubeiðnir o.fl. Að auki er hægt að bæta við Windows hugbúnaði til að halda utanum spjall við viðskiptavini. |
|
osTicket (Skoða síðu framleiðanda) Öflugt þjónustubeiðnakerfi fyrir fyrirtæki. Hægt er að senda þjónustubeiðnir og þú/þið leysið úr þeim. Viðkomandi þjónustufulltrúi getur sent þær milli starfsmanna, svarað með tölvupósti og svör berast til réttra aðila. |
|
PHP Support Tickets (Skoða síðu framleiðanda) Einfalt og þægilegt þjónustubeiðnakerfi. Ekki eins öflugt og osTicket kerfið en einfaldara í notkun. |
|
Support Logic Helpdesk (Skoða síðu framleiðanda) Enn eitt þjónustubeiðnakerfið með öflugri tölfræðiskráningu o.fl. |
| -- |
Support Services Manager (Skoða síðu framleiðanda) Þjónustukerfi, einskonar þjónustuborð fyrir viðskiptavini. |
| |
|
Vefverslunarkerfi |
|
CubeCart (Skoða síðu framleiðanda) Einfalt og þægilegt vefverslunarkerfi sem auðvelt er að sjá um og reka. |
|
OS Commerce (Skoða síðu framleiðanda) OS Commerce er án efa eitt öflugasta vefverslunarkerfi á netinu í dag. Fjöldi vefverslana notar kerfið og hægt er að nálgast yfir 2000 aukahluti fyrir kerfið, þ.m.t. greiðslukerfi, vörulistakerfi, tungumálapakka o.fl. |
| |
|
Spurt&svarað |
|
FAQMasterFlex (Skoða síðu framleiðanda) Spurt og svarað fyrir vefsíðuna þína. Eru viðskiptavinirnir alltaf að spyrja að því sama? Ertu orðin(n) þreytt(ur) á að svara sömu spurningunum aftur og aftur? Þá er þetta fyrir þig! |
|
Help Centre Live (Skoða síðu framleiðanda) Auk þess að vera lifandi spjallkerfi fyrir þjónustuborð býður kerfið notendum upp á að senda inn spurningar utan þjónustutíma. Afara hentugt til að grysja út þá sem eru að spyrja af því sama og allir hinir. |
| |
|
Myndaalbúm |
|
4Images Gallery (Skoða síðu framleiðanda) Ótakmarkaður fjöldi flokka, FTP og myndaupphleðsla í gegnum vefsíðu, athugasemdakerfi, einkunnakerfi, "sendu mynd", póstkortakerfi og slideshow möguleiki, er eitthvað af því sem prýðir þetta frábæra kerfi. |
|
Coppermine Photo Gallery (Skoða síðu framleiðanda) Ekki ósvipað 4Images en meira í anda phpBB2 kerfisins. Svipaðir möguleikar og í 4Images. |
|
Gallery (Skoða síðu framleiðanda) Öflugt myndaalbúm með mörgum skemmtilegum möguleikum. |
| |
|
Póstlistakerfi |
|
|
PHPlist (Skoða síðu framleiðanda) Hér getur þú sett upp póstlista, unnið með og sent tölvupósta og skilaboð til meðlima. |
| |
|
Verkefnastjórnun |
|
dotProject (Skoða síðu framleiðanda) Verkefnastjórnunarkerfi |
|
PHProjekt (Skoða síðu framleiðanda) Verkefnastjórnunarkerfi |
| |
|
Annar hugbúnaður og forrit |
|
Moodle (Skoða síðu framleiðanda) Moodle er fjarkennsluumhverfi á borð við WebCT. |
|
Noah’s Classifieds (Skoða síðu framleiðanda) Smáauglýsingakerfi |
|
Open-Realty (Skoða síðu framleiðanda) Fasteignasölukerfi |
|
phpAdsNew (Skoða síðu framleiðanda) Auglýsingakerfi. Þú fylgist með birtingu auglýsingaborða eða opnar þína eigin auglýsingastofu á netinu. |
|
PHPauction (Skoða síðu framleiðanda) Uppboðskerfi í anda eBay. Nú getur þú haldið uppboð á hinu og þessu, hvort sem er fyrir almenning eða bara úr bílskúrnum og geymslunni. |
|
phpCoin (Skoða síðu framleiðanda) Innheimtukerfi sem hannað var upphaflega fyrir vefhýsingarfyrirtæki. Nú er kerfið hentugt fyrir flesta sem þurfa að halda utan um samninga við viðskiptavini, rukkanir og vanskil. |
| -- |
phpFormGenerator (Skoða síðu framleiðanda) Útbúðu form sem safna upplýsingum. Formin er svo hægt að senda út í tölvupósti eða birta á heimasíðunni og kerfið sér um að halda upplýsingunum saman. |
|
phpLinks (Skoða síðu framleiðanda) |
| -- |
WebCalendar (Skoða síðu framleiðanda) Mjög öflugt dagbókarkerfi sem hægt er að samtengja við t.a.m. Palm lófatölvur. Margir geta notað kerfið í einu og deilt dagbókum sín á milli. |