Hvernig vef dreymir þig um að fá fyrir þig eða fyrirtækið þitt? Sendu okkur lýsingu með draumavefnum þínum og hvaða sanngjarna verð þú vilt fá hann á, og hver veit nema þú verðir dregin(n) út í þessum mánuði! Draumalýsingin þarf að vera sem nákvæmust svo þú fáir örugglega það sem þú raunverulega vilt fá.
Starfsmenn Go.is internetlausna búa yfir mikilli reynslu í vefsmíði. Starfsmenn hafa í fjöldamörg ár starfað við vefhönnun og unnið verkefni fyrir einstaklinga, fyrirtæki, félagasamtök og stofnanir. Verkefnin eru jafn mismunandi og þau eru mörg en starfsmenn vefsmiðjunnar taka að sér verkefni af öllum stærðum og gerðum.
Nokkur dæmi áður unnin verkefni (vefur og aðlögun umsjónarkerfis):
Þetta eru einungis dæmi um nokkur af þeim verkum sem fyrirtækið hefur séð um að vinna og skipuleggja. Leitaðu til okkar áður en þú leitar annað - það gæti borgað sig!
Allir vefir sem við setjum upp og eru hýstir hjá okkur innihalda fullkomið vef- og fréttaumsjónarkerfi, hið ofurvinsæla Joomla vefumsjónarkerfi. Með þessu kerfi ásamt fjölda aukakerfa (sem hægt er að bæta við eftir þörfum) geta starfsmenn fyrirtækis eða einstaklingar séð um viðhald og uppfærslur á vefnum, án sérstaks hugbúnaðar. Joomla kerfið er bæði einfalt og þægilegt í notkun.