Hvernig vef dreymir þig um að fá fyrir þig eða fyrirtækið þitt? Sendu okkur lýsingu með draumavefnum þínum og hvaða sanngjarna verð þú vilt fá hann á, og hver veit nema þú verðir dregin(n) út í þessum mánuði! Draumalýsingin þarf að vera sem nákvæmust svo þú fáir örugglega það sem þú raunverulega vilt fá.
Vefumsjónarkerfi
go.is bjóða upp á fullkomin vefumsjónarkerfi hönnuð og þróuð með notendur í huga. Með tilkomu þeirra getur notandinn loksins viðhaldið vefjum í gegnum vafra, hvar sem er og hvenær sem er.
Vefkerfi go.is samanstanda af eftirfarandi undirkerfum:
Textaumsjónarkerfi
Fréttaumsjónarkerfi
Spjallþráðakerfi
Verslunarkerfi
Starfsmannaumsjón
Viðskiptamannakerfi
Klukka & teljari
og önnur sérsmíðuð undirkerfi
Með vefkerfum vefsmiðjunnar getur hver sem er viðhaldið vefjum fyrirtækis þíns og það er ódýrara en þú heldur. Leitaðu upplýsinga hjá okkur áður en þú leitar annað. Þú sérð ekki eftir því.
Nokkrar skjámyndir:
Síðulisti þar sem hægt er að velja þær síður sem á að breyta. Hægt er að stjórna birtingum síðna og staðsetningu héðan.
Dæmigerð síða í smíðum. Með fullkomnum ritþór kerfisins geta notendur unnið í vefsíðum líkt og um ritvinnslukerfi væri að ræða.
Mynd sett á síðu. Hér er hægt að velja úr öllum myndum vefsins og/eða senda inn nýjar á einfaldan hátt.
Í fréttakerfi fækkar möguleikum ritþórs til að tryggja sama útlit allra frétta vefsins. Notandi getur þó enn formað texta og sett inn myndir.
Vefumsjónarkerfið býður m.a. upp á ítarlegar umferðarskýrslur þar sem nákvæmar tölur um umferð og heimsóknir koma fram jafnt í tölum sem riti.
Þetta eru aðeins nokkur dæmi um skjámyndir úr umsjónarkerfi go.is og eru einungis til að gefa hugmynd um einfalda notkun en jafnfram fullkomna eiginleika kerfisins.
Vefumsjónarkerfi go.is er að sjálfsögðu á íslensku! - íslenskt, já takk!